Um Fönn
Þvottahúsið Fönn ehf. var stofnað 29. janúar 1960 og var til húsa fyrstu árin í bakhúsi að Fjólugötu 19b í Reykjavík. Starfsemin var að uppistöðu til skyrtuþvottur og starfsmenn voru einungis þrír. Tækjakosturinn í þá daga var 12 kg þvottavél, ein 7 kg þeytivinda, sérhannað skyrtusett og ein lítil strauvél.
Árið 1967 flutti Fönn að Langholtsvegi 113 og keypt voru ný og fullkomnari tæki. Fyrirtækið stækkaði ört á þessum árum og húsnæðið að Langholtsvegi varð óhentugt enda á þremur hæðum.
Árið 1982 voru starfsmenn Fannar orðnir 25 talsins og það sama ár flutti Fönn í Skeifuna 11. Starfsemin var þá að mestu leyti rekin á einni hæð, á um 1.230 fermetrum en stækkaði í 2.000 fermetra árið 2004.
Árið 2014 var örlagaár í sögu Fannar því þá brann húsnæðið í Skeifunni og allt sem í því var. Starfsemin lagðist þó ekki niður og með þrotlausri vinnu starfsmanna og aðstoð góðra fyrirtækja var þvottur viðskiptavina þveginn víða um borgina þar til í desember 2014 að Fönn flutti í nýtt húsnæði að Kletthálsi 13 þar sem fyrirtækið starfar í dag. Starfsmenn Fannar eru nú um 40 talsins og hafa margir unnið hjá fyrirtækinu í meira en 15 ár.
Fönn hefur yfir að ráða fullkomnum og afkastamiklum tækjabúnaði af nýjustu gerð og þjónar eins og áður þörfum einstaklinga jafnt sem stórra fyrirtækja og stofnana. Aukin afkastageta eykur sveigjanleika okkar til að bregðast við breyttum þörfum viðskiptavina. Við leggjum mikið upp úr því að viðskiptavinir okkar geti treyst því að fá þvottinn sinn hreinan á umsömdum tíma og að gæðin uppfylli væntingar þeirra.
Kt. 641097-3229 · Vsk. nr. 112524
Gæði — Traust — Sveigjanleiki
Efnalaug síðan 1960
starfsmenn
ára reynsla
